Select Page

Ekkert er lengur framandi við þessa borg,
við höfum farið saman svo marga hringi síðan ég kom,
flóttamaður úr kyrrðinni.

Blaðasala verið skipt út fyrir höfuðbana,
London fengið nafn annarrar stórborgar
og þriðja kynslóð róna komin á göturnar.

Ég finn ekki lengur lyktina af heitavatninu,
tapa ekki áttum á Laugaveginum,
upplifi enga nostalgíu á skiptistöðinni.

En ég hef tekið eftir einu.
Borgin er lögð af stað,
hún stefnir austur,
hún er á leiðinni heim.